Færslur: 2007 Október
30.10.2007 12:30
AFMÆLISKVEÐJUR!
Í dag á merkur maður afmæli. Það er hann pabbi minn, Sigurður Aðalsteinsson. Hann verður á fjöllum í dag skv. Morgunblaðinu og aldrei lýgur það!!

Elsku pabbi minn, innilega til hamingju með daginn í dag. Hafðu það gott á fjöllum, sjáumst vonandi eitthvað í dag.................

Skrifað af Sigríður sveitalúði
14.10.2007 09:24
jæja
Góðan daginn hér á þessum bæ..
Borðaði með Siggu og Grétu í Kaupfélaginu um daginn og viðraði þá við þær eitthvað sem er búið að vera mér hugleikið lengi.. Í sjónvarpsmarkaðnum er hægt að fá svona lofttæmingarpoka í ferðalagið. Sumsé, þú setur fötin þín í vacumpökkunarpoka og svo sýguru allt loftið úr til að minnka umfangið í töskunni. Gott mál með það, en það sem ég var að spá í er hvernig á maður svo að komast til baka með allt dótið? Þú tekur fötin úr pokanum, og allt fyllist af lofti, en hvað svo? Eru ryksugur bara útum allt í ferðalögum svo maður geti pakkað upp á nýtt? Eða þarf maður að taka ryksuguna með sér? Er þetta þá ekki ótrúlega tilgangslítið, fer ekki allt plássið í að koma ryksugunni fyrir?? Pæling...
Svo er hægt að kaupa einhversstaðar ofurléttar risa ferðatöskur. En þær kosta svo mikið að þú græðir ekkert á því. Allt sem þú græðir á því að vera ekki með yfirvigt liggur í blessaðri töskunni. Ekki hagkvæmt ef þú ferðast ekki mikið.
Þetta var pæling dagsins.
Takk fyrir mig og bless bless bless....
Gummi harðstjóri mun vera daglegur vinur minn næstu daga og vikur.... Stay tuned...

- 1
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 9
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 99460
Samtals gestir: 38548
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:35:30